Be Active

ÍÞRÓTTAVIKA EVRÓPU

22. september - 1. október 2026

Íþróttavika Evrópu (BeActive) verður haldin á Skagaströnd enn eitt árið. Boðið verður upp á fjölbreytta viðburði fyrir alla aldurshópa og við hvetjum alla til að mæta á sem flesta þeirra.

Sumt er eingöngu ætlað börnum og fer fram á skólatíma, en flestir viðburðir eru opnir öllum. Áherslan er á að kynna íþróttir fyrir fólki sem vill bæta heilsuna, prófa eitthvað nýtt eða bara rifja upp gamla takta.

Dagskrá
Kraftlyftingar
Þriðjudaginn 22. sept. Erindi í skóla og kennsla í lyftingasal fyrir fullorðna kl. 17-19. Umsjón: Lára Bogey Finnbogadóttir
Júdó
Miðvikudag og fimmtudag kl. 11-14 Miðvikudaginn kl. 11-14 fyrir yngsta stig, fimmtudaginn kl. 11-14 fyrir miðstig og unglingastig. Umsjón: Annika Líf Maríudóttir Noack, þjálfari júdódeildar Tindastóls
Göngubolti
Miðvikudaginn 23. sept. kl. 18-19 Í íþróttahúsinu. Fyrir alla. Fótbolti nema bannað að hlaupa! Umsjón: stjórn Fram
Golf
Fimmtudaginn 24. sept. 5.-7. bekkur kl. 16, 8.-10. bekkur kl. 17-18. Á golfvellinum. Umsjón: Finnbogi Guðmundsson
Píla
Föstudaginn 25. sept. kl. 17 Pílumót fyrir alla aldurshópa. Í íþróttahúsinu. Umsjón: Ingimar Vignisson
Frisbígolf
Laugardaginn 26. sept. kl. 13 Mæting við fyrstu holu. Fyrir alla. Umsjón: Garðar Grétarsson
Betri svefn
Mánudaginn 28. sept. kl. 20 Betri svefn með Dr. Erlu Björnsdóttur. Í Bjarmanesi.
Pickleball
Þriðjudaginn 29. sept. Kl. 18-19 fyrir krakka, kl. 19-20 fyrir fullorðna. Inni í íþróttahúsi eða úti á velli. Umsjón: Arnar Viggósson
Knattspyrna
Fimmtudaginn 1. okt. kl. 15-17 Knattspyrnuakademía Norðurlands með æfingu fyrir krakka í 1.-5. bekk. Í íþróttahúsinu. Umsjón: Tóti
Rafíþróttir
Tímasetning óvís FIFA-mót í PlayStation.
Sumt er eingöngu ætlað börnum og fer fram á skólatíma, en flestir viðburðir eru opnir öllum. Sjáumst!