Ungmennafélagið Fram fagnar 100 ára afmæli
Ungmennafélagið Fram á Skagaströnd fagnar aldarafmæli sínu í ár. Félagið var stofnað árið 1926 og hefur í heila öld verið miðpunktur íþrótta- og félagslífs á Skagaströnd.
Ungmennafélagið Fram á Skagaströnd fagnar aldarafmæli sínu í ár. Félagið var stofnað árið 1926 og hefur í heila öld verið miðpunktur íþrótta- og félagslífs á Skagaströnd.
Húnabyggð hefur hlotið styrk til að bjóða upp á rútuferðir frá Blönduósi á fótboltaæfingar á Sauðárkróki. Okkur á Skagaströnd býðst að taka þátt. Fyrirkomulagið gildir fram að jólum og verður þá metið og endurskoðað.
Rútan leggur af stað frá Húnaskóla á Blönduósi og tekur krakkana héðan upp við vegamótin við Laxá, sem eru um 5 mínútur frá Blönduósi. Á heimleiðinni skilar hún þeim aftur þangað. Foreldrar á Skagaströnd þurfa sjálfir að skipuleggja akstur að vegamótunum og þaðan heim, til dæmis með því að skiptast á að keyra. Við hvetjum foreldra til að tala saman og setja upp akstursplan.
Íþróttavika Evrópu (BeActive) verður haldin á Skagaströnd enn eitt árið. Boðið verður upp á fjölbreytta viðburði fyrir alla aldurshópa og við hvetjum alla til að mæta á sem flesta þeirra.