Sumardagskrá 2026 – Skráning hafin

Sumarnámskeiðin hefjast strax í næstu viku á sparkvellinum með Knattspyrnuakademíu Norðulands og svo verður Judith með litla skólagarða á skólalóðinni. Hún mun svo sjá um uppskeruna þegar að því kemur. Kristbjörg Dúfa heldur listasmiðju í kjallaranum á Einbúastíg 2 þar á eftir.
Það er alltaf gaman fyrir krakkana að gera marga ólíka hluti yfir sumarið bæði úti og inni. Námskeiðin eru breytileg ár frá ári en sumir póstar standa sama hvað; kofasmíðin og björgunarsveitin sem er eiginlega rósin í hnappagatinu hjá okkur. Rúsínan í pylsuendanum er svo kayaknámskeiðið í ágúst.
Dagskráin er ekki fullbúin fyrir allt sumarið en dagsetningar fyrir júlínámskeiðin verða kynntar seinna. Ennþá er pláss fyrir góðar hugmyndir að námskeiði í júlí og jafnvel líka í ágúst.
Við hjá Umf Fram erum stolt af þessu starfi okkar. Margir koma að þessu ýmist í fyrir lítið eða í sjálboðaliðastarfi, allt eftir efnum og ástæðum. Við þökkum fyrir viðleitnina, sérstaklega hjá þeim sem koma af fyrra bragði og bjóða fram krafta sína.