Skíðaskálinn í Spákonufelli; upphaf og bygging

„Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er skálinn fullbyggður og sólpallur kominn við suðurhlið hans. Vegna mikils vindálags, sem oft getur verið við skálann, var ekki haft þakskegg að austanverðu til að minnka hættuna á að þakið fyki af."
Ljósmynd: Ingibergur Guðmundsson, Ljósmyndasafn Skagastrandar.
Skíðaskáli ungmennafélagsins Fram á sér skemmtilega sögu. Skálinn var byggður á einu ári, gerður fokheldur um haustið 1984 og síðan innréttaður um veturinn og vorið 1984-1985. Skálinn var að langmestu leyti byggður í sjálfboðavinnu. Skíðaskálinn er ennþá notaður fyrir afmæli, fundi, útskriftaferðir úr leikskólanum Barnabóli og fleira. Hann er einnig í útleigu sem gistiaðstaða á sumrin og á veturna ef það er ekki ófært þangað uppeftir vegna snjóþyngsla. Greinin byggir eingöngu á texta úr Ljósmyndasafni Skagastrandar.
Forsagan

„Þessi mynd var tekin 1965 af Skátaskálanum sem byggður var í suðurhlíðum Spákonufellsins ofan skíðaskálans sem þar er nú. Örlög þessa húss urðu þau að það brotnaði niður undan snjóþunga eftir nokkur ár. Mennirnir á myndinni eru óþekktir."
Skátafélagið Sigurfari hafði á undan þessu rekið gott starf í bænum; skátahúsið ofar í hlíðinni sat í litlum hvammi upp af þeim stað þar sem skíðaskálinn stendur nú.
Togbrautin og lyftan

„Þessi mynd frá 1977 sýnir vel hvernig skíðaaðstaðan í Spákonufellinu var á þessum árum. Dráttarvél var notuð til að snúa spili með kaðli sem fór svo í gegnum blökk uppi á toppi brekkunnar. Fólk hékk síðan í kaðlinum á leið upp brekkuna. Bannað var að vera með trefil um hálsinn því kaðallinn sneri upp á sig á leiðinni upp og gat gripið í trefilinn og þannig hert að hálsi viðkomandi. Árið 1979, nokkrum árum eftir að þessi mynd var tekin, var svo keypt toglyfta og sett í brekkuna norðan við þá sem lyftan á myndinni er í. Eins og sjá má á myndinni vantaði ekki áhugasamt skíðafólk til að nýta sér þessa frumstæðu aðstöðu á góðum dögum."
„Um árabil var skíðalyfta rekin í suðurhlíðum Spákonufells. Umhirða lyftunnar og að halda henni opinni var í höndum skíðadeildar umf Fram en í deildinni voru áhugamenn um skíðamennsku. Sumarið 1984 og veturinn á eftir byggði skíðadeildarfólkið skíðaskála við hlið lyftunnar." Húsið teiknaði Vilmar Þór Kristinsson tæknifræðingur eiginmaður Unnar Gunnarsdóttur frá Skagaströnd.
Smíði skálans

„Vorið 1984 hófust áhugamenn handa við að byggja Skíðaskálann á Skagaströnd. Á myndinni er verið að slétta landspildu undir skálann í suðurhlíðum Spákonufells. Eftir sléttunina var keyrð möl úr Hrafná á svæðið og sökkullinn síðan steypur ofan á hana."

„Á myndinni er verið að slá frá sökklinum og hreinsa timbrið. Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Ólafur Bernódusson og Ingibergur Guðmundsson."

„Á myndinni er Halldór Gunnar Ólafsson í handlöngun með pabba sínum Ólafi Bernódussyni er þeir voru að smíða grindina í skálanum."

„Á myndinni er búið að reisa sperrur skálans og þá var að sjálfsögðu haldið reisugilli með kaffi, kleinum og rjómapönnukökum. Til hægri sér í gamla lyftuskúrinn og lyftumótorinn."

„Á myndinni er stund mikilli stríða eftir að búið er að einangra skálann með glerull. Skíðaáhugamennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Pétur Eggertsson, Ólafur Bernódusson og Magnús B. Jónsson."

„Á myndinni er skálinn tilbúinn fyrir klæðninguna utan á tjörutexið."
Veturinn 1984–85 vann fjöldi sjálfboðaliða um helgar að klæðningunni að innan.

Jólapósturinn og önnur tekjuöflun

„Eitt af því sem skíðadeildarfólk gerði til að fjármagna byggingu skíðaskálans var að bera út jólapóstinn fyrir fólk á Skagaströnd. Á myndinni eru nokkrir þeirra að leggja af stað í útburð sem jólasveinar. Hjálparmaður þeirra, Eðvarð Hallgrímsson, ók þeim um bæinn því hreindýrin voru lasin. Jólasveinarnir eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Ólafur Bernódusson, óþekktur og Guðmundur Haukur Sigurðsson."
Skíðadeildin var með samning við bæinn um skíðakennslu í grunnskólanum.
Vatnið í skálann
Vatnið er sagt mjög gott og tekið úr lind norðan og ofan við skálann.

„Á myndinni, sem tekin var snemma vorið 1985, eru menn að grafa skurð að lindinni og koma fyrir safngeymi og plaströri frá honum að skálanum. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Magnús B. Jónsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Ólafur Bernódusson." Hluti af skurði fyrir vatnslögnina var handmokaður í október 1984.
Vígslan 5. apríl 1985
Skálinn var vígður formlega 5. apríl 1985 og þá var húsfyllir í skálanum enda var skíðamennska almenn og vinsæl hjá ungum sem öldnum.

„Frá vígslu skíðaskálans á páskum 1985. Magnús Jónsson heldur ræðu í kaffisamsæti í skálanum."

„Hluti af fólkinu sem skipaði skíðadeildina og stóð fyrir byggingu Skíðaskálans 1984-85. Hér eru þau að halda upp á vel heppnaða vígsludag 5. apríl 1985. Frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Guðmundur Jón Björnsson, Magnús Björn Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir og Þorbjörg Magnúsdóttir."

„Myndin er af skíðaskálanum í Spákonufelli. Þarna var skíðaparadís sem byggð var upp af samhentu áhugafólki með stuðningi sveitarfélags og fyrirtækja. Skíðamennska lagðist af þarna kringum árið 2000 m.a. vegna mjög hertra öryggiskrafna yfirvalda, sem gerðu gömlu skíðalyftuna nánast ónothæfa. Á myndinni er mikið um að vera í blíðviðri og margir á skíðum."

„Skíðaskálinn á Skagaströnd við rætur Spákonufells. Hvíti skúrinn á myndinni var lyftuskúr en hann fauk í ofviðri og splundraðist."
Skálinn stendur.
Ljósmyndir og texti í myndskýringum eru frá Ljósmyndasafni Skagastrandar.