Skagastrandarhlaupið nálgast – brautirnar eru tilbúnar

Þrjár vikur eru eftir í Skagastrandarhlaupið! Minnum á skráningu á netskraning.is/skagastrandarhlaupid. Nú hafa allar brautir verið mældar og birtum við hér kort af leiðunum svo hægt sé að kynna sér þær, eða prófa þær, áður en keppnin hefst 19. júlí. Fjórar vegalengdir eru í boði:
- Götuhlaup: 5 og 10 km
- AtWork Megatrail: 18 km
- Útbæjarhlaupið: Tæpur kílómetri, ætlað fyrir börn og fullorðna
Vegalengdirnar eru nokkuð almennar, 5 km hlaupið geta margir hlaupið, 10 km hlaupið er hugsað fyrir aðeins reyndari hlaupara. Utanvegahlaupið verður hátt í 18 km með um 400 m hækkun og 18 ára (2008) aldurstakmark er í það. Öll börn og fullorðin eru hvött til að hlaupa Útbæjarhlaupið. Það verður ekki ræst fyrr en eftir að keppendur eru komnir í mark úr götuhlaupunum og AtWork Megatrail svo að fullorðnir keppendur geti líka hlaupið 1 km með börnunum eftir á.
AtWork Megatrail – 18 km utanvegahlaup

Götuhlaupið – 5 km og 10 km

Útbæjarhlaupið – 1 km

Við þurfum á aðstoð að halda
Ungmennafélagið ásamt björgunarsveitinni Strönd og kvenfélaginu Einingu eru að leita að fólki til að gæta brautanna meðan keppnin fer fram. Þetta felst í því að standa við ákveðin beygjur eða vegamót og sjá til þess að hlauparar fari réttar leiðir og að leiðbeina umferð. Ef þú getur gefið nokkra klukkutíma sunnudaginn 19. júlí, hafðu samband við okkur.
Skráning
Hlaupið verður haldið 19. júlí og fer skráning fram hjá Netskráningu.is. Þar eru einnig allar nauðsynlegar upplýsingar um hlaupið: netskraning.is/skagastrandarhlaupid