ÁFram Atwork – Skagastrandarhlaupið 2026

Sunnudagurinn 19. júlí 2026, kl. 14:00
Skagastrandarhlaupið er samvinnuverkefni ATWORK og umf. Fram og allur ágóði rennur til ungmennafélagsins.
Vegalengdir
| Hlaup | Tími |
|---|---|
| ATWORK MEGA TRAIL – 13,5 km utanvegahlaup | Kl. 14:00 |
| 5 km og 10 km götuhlaup | Kl. 14:10 |
| 1 km skemmtisokk | - |
ATWORK MEGA TRAIL er ræst frá höfninni og leiðin liggur upp að Spákonufelli, hringinn í kringum fellið og til baka að höfninni. 5 km og 10 km hlaupið er einn og tveir hringir um götur Skagastrandar. 1 km skemmtisokk er kjörið fyrir yngstu hlauparana en foreldrar eru hvattir til að hlaupa við hlið barna sinna.
Götuhlaupin eru FRÍ vottuð. Aldurstakmark er 18 ára (f. 2008) í utanvegahlaupið, ekkert aldurstakmark í götuhlaupin.
Verðlaun
Peningaverðlaun eru í boði fyrir fyrstu þrjá í 5 km, 10 km og ATWORK MEGA TRAIL. Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna í hverjum flokki og hverri vegalengd, auk viðurkenningar í öllum flokkum.
Innifalið í skráningargjaldi
- Drykkur í marki
- Kökuhlaðborð í íþróttahúsinu að hlaupi loknu
- Frítt í sund og gufu að loknu hlaupi
- Brautar- og öryggisgæsla
- Aðgangur að hjúkrunarfólki
- Salerni og sturtuaðstaða
- Flutningur til byggða fyrir þá sem ná ekki tímamörkum í Mega Trail (2,5 klst)
- Keppnisnúmer, tímataka og vottaður árangur
Spákonuhof og veitingahús staðarins verða opin. Hægt er að panta tjaldstæði eða panta hótelgistingu, skella sér í strandblak, golf eða frisbí-golf.
Skráning
Skráning fer fram á netskraning.is - skráningartími er til kl. 21:00 þann 18. júlí.
Nánari upplýsingar
- Netfang: frida@heilsutorg.is
- Sími: Fríða Rún Þórðardóttir – 898 8798