AtWork Skagastrandarhlaupið 2026 — Frábær hlaupadagur

Frábær hlaupadagur að baki. AtWork Skagastrandarhlaupið var í dag haldið í fyrsta sinn og gekk framar vonum. Um 70 keppendur hlupu í götuhlaupunum og utanvegahlaupinu. Slatti af krökkum tók svo þátt í útbæjarhlaupinu.
Margir aðilar komu að þessum viðburði og viljum við þakka kvenfélaginu Einingu og björgunarsveitinni Strönd sérstaklega. Þau Fríða Rún og Tómas hjá AtWork eiga hrós skilið fyrir að taka af skarið með hlaupið, græja þetta allt saman og skipuleggja með okkur. Takk fyrir daginn öll sömul og síðast en ekki síst viljum við þakka öllum hlaupurunum fyrir frábæra frammistöðu.
Hér má sjá tíma keppenda: timataka.net/skagastrandarhlaupid2026