Ný stjórn Umf. Fram
Aðalfundur umf. Fram var haldinn 20. febrúar og var kjörin ný stjórn. Fráfarandi stjórn umf. Fram gengur stolt frá borði og réttir lyklana áfram í hendur nýrrar stjórnar.
Við þökkum Péturínu, Ástrós Villu og Helenu Möru fyrir ómetanlegt starf og allt sem þær hafa lagt af mörkum í þjónustu félagsins.
Kærar þakkir til allra iðkenda, þjálfara, foreldra og velunnara - án ykkar væri ekkert ungmennafélag.
Fráfarandi stjórn óskar nýkjörinni stjórn velfarnaðar í öllum þeirra störfum.
Ný stjórn:
| Nafn | Hlutverk |
|---|---|
| Valtýr Sigurðsson | Stjórnarformaður |
| Guðlaugur Siggi Hannesson | Gjaldkeri |
| Ingimar Vignisson | Ritari |
| Garðar Grétarsson | Stjórnarmaður |
| Arnar Ólafur Viggósson | Stjórnarmaður |
Varastjórn: Sigrún Líndal Þrastardóttir