Íþróttavika Evrópu á Skagaströnd
Íþróttavika Evrópu (BeActive) verður haldin á Skagaströnd enn eitt árið. Boðið verður upp á fjölbreytta viðburði fyrir alla aldurshópa og við hvetjum alla til að mæta á sem flesta þeirra.
Sumt er eingöngu ætlað börnum og fer fram á skólatíma, en flestir viðburðir eru opnir öllum. Áherslan er á að kynna íþróttir fyrir fólki sem vill bæta heilsuna, prófa eitthvað nýtt eða bara rifja upp gamla takta.
Sjáumst!
Nánari dagskrá má finna á dagskrársíðunni og á meðfylgjandi plakati. Einnig má sækja plakatið og dagskrá vikunnar á PDF til útprentunar.
