Héraðsmót USAH 2026

Á dögunum var héraðsmót USAH í frjálsum íþróttum haldið á Blönduósi. Stigahæsta lið mótsins með 332,5 stig var umf. Geislar, í öðru sæti með 312,5 stig var UMFB, í þriðja sæti með 208 stig var umf. Hvöt og í fjórða sæti með 146 stigum var umf. Fram.
Markverðast hjá iðkendum okkar í umf. Fram var árangur Katrínar Heiðu Finnbogadóttur, Katrínar Söru Reynisdóttur og Láreyjar Möru Velemir.
Katrín Heiða
Katrín Heiða keppti í flokki 14–15 ára og átti frábært mót, sigraði í fjórum greinum: spjótkasti (31,25 m), 800 m hlaupi (3:19,70), 100 m hlaupi (13,97 sek) og langstökki (4,20 m), auk þess að bæta við silfri í kúluvarpi og bronsi í hástökki. Var hún stigahæst í sínum flokki.
Lárey Mara
Lárey Mara keppti einnig í flokki 14–15 ára og sigraði í kúluvarpi með 10,41 m kasti, auk þess að hreppa silfur í spjótkasti, hástökki og langstökki og bronsi í 800 m hlaupi. Þess má einnig geta að Lárey keppti sem gestur í flokki 16–19 ára í kringlukasti, þar sem kringla var ekki í boði í hennar eigin flokki, og kastaði 23,52 m — lengsta kast mótsins í þeim flokki.

Katrín Sara
Katrín Sara keppti í flokki 12–13 ára og átti hreint út sagt frábæra keppni — hún sigraði í öllum sex greinum sem hún tók þátt í: spjótkasti (16,85 m), 400 m hlaupi (1:19,96), kúluvarpi (9,67 m), hástökki (1,30 m), 100 m hlaupi (14,59 sek) og langstökki (4,08 m). Var hún einnig stigahæst í sínum flokki.
