Frístundaakstur á æfingar á Sauðárkróki

Húnabyggð hefur hlotið styrk til að bjóða upp á rútuferðir frá Blönduósi á fótboltaæfingar á Sauðárkróki. Okkur á Skagaströnd býðst að taka þátt. Fyrirkomulagið gildir fram að jólum og verður þá metið og endurskoðað.
Hvernig virkar þetta fyrir Skagaströnd?
Rútan leggur af stað frá Húnaskóla á Blönduósi og tekur krakkana héðan upp við vegamótin við Laxá, sem eru um 5 mínútur frá Blönduósi. Á heimleiðinni skilar hún þeim aftur þangað. Foreldrar á Skagaströnd þurfa sjálfir að skipuleggja akstur að vegamótunum og þaðan heim, til dæmis með því að skiptast á að keyra. Við hvetjum foreldra til að tala saman og setja upp akstursplan.
Rútuplan fram að jólum
Tímarnir miða við brottför frá Húnaskóla. Rútan er við vegamótin við Laxá um 5 mínútum síðar.
| Dagur | Brottför frá Húnaskóla | Æfingar | Áætluð heimferð frá Sauðárkróki |
|---|---|---|---|
| Mánudagur | 14:15 | 5. fl. kk/kvk og 4. fl. kvk, 15:00–16:00 | 16:15 |
| Þriðjudagur | 15:15 | 3. fl. kk/kvk 16:00–17:30, 4. fl. kk 16:15–17:30 | 17:30 |
| Föstudagur | 13:45 | 4. fl. kk 14:30–15:30, 4. fl. kvk 14:30–16:00, 3. fl. kk/kvk 16:15–17:30 | 17:30 |
| Flokkur | Aldur | Bekkur |
|---|---|---|
| 3. flokkur | 15–16 ára | 9. og 10. bekkur |
| 4. flokkur | 13–14 ára | 7. og 8. bekkur |
| 5. flokkur | 11–12 ára | 5. og 6. bekkur |
Á föstudögum er lengri bið. Krakkarnir hafa þá aðstöðu í vallarhúsinu á Sauðárkróksvelli og þar verður starfsmaður á staðnum. Strákar í 7.–10. bekk geta líka nýtt föstudagsferðina á körfuboltaæfingar hjá Tindastóli, og körfuknattleiksdeildin býður 50% afslátt af æfingagjöldum.
Skráning og mikilvægar dagsetningar
- Skráningarform: í síðasta lagi þriðjudaginn 29. september. Skráningin ræður stærð rútunnar. Í forminu er líka hægt að merkja við áhuga á körfubolta. Skráning hér
- Abler: í síðasta lagi miðvikudaginn 30. september. Skrá þarf barnið í samstarfið hjá knattspyrnudeild Tindastóls. Eftir þann dag fellur afslátturinn niður og greiða þarf fullt gjald.
- Fyrsta ferð er áætluð föstudaginn 2. október (ekki endanlega staðfest). Þau sem skrá sig fá nánari upplýsingar í tölvupósti.
- Þegar aksturinn hefst verður rútuplanið sett inn í Abler. Þar merkja foreldrar við þá daga sem barnið nýtir rútuna.
Ábyrgð
Húnabyggð útvegar rútuna, en börnin eru á ábyrgð foreldra og forráðamanna. Foreldrar bera ábyrgð á að barnið mæti í rútuna á réttum tíma, bæði við Laxá og á Sauðárkróki fyrir heimferð, og að það fylgi reglum sem gilda í akstrinum. Reglurnar verða sendar út síðar.
Það er stórt skref fyrir 10–11 ára krakka að fara ein á æfingu í öðru bæjarfélagi. Foreldrar í 5. flokki eru því hvattir til að skiptast á að fara með í rútunni á mánudögum, að minnsta kosti fyrst um sinn.
Tengiliður á Skagaströnd: Finnbogi fótboltaþjálfari
Bréf frá frístundafulltrúa Húnabyggðar
Kæru foreldrar og forráðamenn,
Nú er komið að því að hefja frístundaakstur frá Blönduósi til Sauðárkróks. Húnabyggð hlaut styrk til verkefnisins og verður því boðið upp á rútuferðir fyrir börn og ungmenni sem sækja íþróttaæfingar á Sauðárkróki.
Til að við getum gengið frá samningi við rútufyrirtæki og vitað hversu stóra rútu þarf í ferðirnar biðjum við foreldra að fylla út skráningarformið í síðasta lagi þriðjudaginn 29. september.
Áætlað rútuplan fram að jólum:
Mánudagar Rúta fer frá Húnaskóla kl. 14:15.
- flokkur kk og kvk – fótboltaæfing kl. 15:00–16:00
- flokkur kvk – fótboltaæfing kl. 15:00–16:00
Áætluð heimferð frá íþróttahúsinu á Sauðárkróki kl. 16:15.
Þriðjudagar Rúta fer frá Húnaskóla kl. 15:15.
- flokkur kk og kvk – fótboltaæfing kl. 16:00–17:30
- flokkur kk – fótboltaæfing kl. 16:15–17:30
Áætluð heimferð frá íþróttahúsinu á Sauðárkróki kl. 17:30.
Föstudagar Rúta fer frá Húnaskóla kl. 13:45.
- flokkur kk – fótboltaæfing kl. 14:30–15:30
- flokkur kvk – fótboltaæfing kl. 14:30–16:00
- flokkur kk og kvk – fótboltaæfing kl. 16:15–17:30
Áætluð heimferð frá íþróttahúsinu á Sauðárkróki kl. 17:30.
Á föstudögum verður lengra stopp. Þau hafa þá aðstöðu í vallarhúsinu á Sauðárkróksvelli meðan þau bíða og verður starfsmaður á staðnum.
Á föstudögum eru einnig körfuboltaæfingar hjá Tindastóli fyrir stráka í 7.–10. bekk og geta þeir nýtt rútuferðina. Körfuknattleiksdeild Tindastóls býður jafnframt 50% afslátt af æfingagjöldum. Í skráningarforminu verður hægt að merkja við áhuga á körfubolta.
Mikilvægt varðandi skráningu og ábyrgð
Foreldrar þurfa að vera búnir að skrá börnin í samstarfið hjá knattspyrnudeild Tindastóls í Abler í síðasta lagi 30. september. Eftir þann tíma fellur afslátturinn af æfingagjöldum niður og greiða þarf fullt gjald.
Húnabyggð sér um að útvega rútu fyrir verkefnið, en mikilvægt er að hafa í huga að börnin eru á ábyrgð foreldra/forráðamanna. Það er jafnframt á ábyrgð foreldra að tryggja að barnið skili sér í rútuna á réttum tíma fyrir heimferð frá Sauðárkróki. Það er einnig á ábyrgð foreldra að börnin fylgi þeim reglum sem gilda meðan á akstri stendur.
Ég sendi ykkur reglur, varðandi aksturinn í næstu viku.
Það væri frábært ef foreldrar barna í 5. flokk myndu skiptast á, til að byrja með að fara með í rútunni á mánudögum. Það er ábyggilega stórt skref fyrir marga krakka sem eru 10-11 ára að fara ein á æfingu utan Blönduóss.
Þegar aksturinn hefst verður rútuplanið sett inn í Abler. Þar þurfa foreldrar að merkja við þá daga sem barnið ætlar að nýta rútuferðina svo hægt sé að halda utan um fjölda farþega í hverri ferð.
Stefnt er að því að fyrsta rútuferð verði föstudaginn 2. október, en sú dagsetning er ekki endanlega staðfest. Þau sem skrá börnin fá nánari upplýsingar í tölvupósti í næstu viku.
Þetta fyrirkomulag gildir fram að jólum og verður verkefnið síðan metið og skipulagið endurskoðað í desember.
Við hvetjum foreldra þeirra barna sem hyggjast nýta aksturinn til að fylla út skráningarformið sem fyrst.
Með kveðju, Kristín Frístundafulltrúi Húnabyggðar