Æfingar hefjast 7. september

Nú fara æfingar að hefjast á ný af fullum krafti þann 7. september. Skráningarform er komið á vefsíðuna okkar. Eitt gjald er tekið fyrir þátttöku hvers barns, 20.000 krónur. Þetta gildir hvort sem tekið er þátt í einni íþrótt eða öllum. Sendið „Kvittun takk" á tölvupóstinn ungmennaf.fram@gmail.com til að fá kvittun uppá frístundastyrkinn frá sveitarfélaginu. Kvittunin mun sýna greiðslu fyrir sumarnámskeiðin líka. Ef óskað er eftir dreifingu á greiðslum ekki hika við að hafa samband.
Í vetur verður boðið upp á sex íþróttagreinar: fótbolta, frjálsar íþróttir, körfubolta, hreysti, blak og krakkasprell (sjá stundaskrá). Þjálfarateymið okkar er óbreytt frá í fyrra að því undanskildu að hún Katrín Heiða Finnbogadóttir sem er í 9. bekk verður aðstoðarþjálfari Sigrúnar í frjálsum og krakkasprelli. Þórey Fjóla mun stýra styrktaræfingum í tækjasal og kenna krökkunum góðar leiðir til að efla sig í ræktinni. Palli verður áfram með körfuna og blakið eins og í fyrra en hann verður þó í fæðingarorlofi hluta tímabilsins og við finnum einhvern til að leysa hann af á meðan. Finnbogi og Sigrún, reynsluboltarnir okkar, verða áfram á sínum stað með fótboltann og frjálsar og sjá um samstarf innan sem og utan héraðsins.
Við bjóðum upp á frábært íþróttastarf hér í bænum og við hvetjum foreldra til að minna krakkana á að mæta á allar æfingar. Það er æ meiri ástæða til að æfa íþróttir í samfélagi þar sem langar legur og stífar setur hrjá lýðinn meir og meir. Það að geta tekið þátt í hópíþróttum hvar sem maður lendir í lífinu er manni alltaf til framdráttar. Sama gildir um einstaklingsíþróttirnar. Því meiri geta sem maður hefur til að hreyfa sig og taka þátt því meira verður sjálfstæðið á langri og farsælli lífsleið.